Skipulag "Skansins/ports"
Málsnúmer 201612168
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 12. fundur - 17.01.2017
Valdimar Halldórsson, f.h. Hvalasafnsins á Húsavík, hvetur með bréfi dags. 23. desember Norðurþing til að endurhanna og bæta portið sunnan Hvalasafnsins m.t.t. aukningar í ferðamannafjölda.
Umrætt port er skilgreint sem mögulegt torgsölusvæði í deiliskipulagi svæðisins. Nefndin leggur til við framkvæmdanefnd að frágangur svæðisins verði hannaður með tilliti til þeirrar notkunar.