Helgi Þór Kárason sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Skógahlíð
Málsnúmer 201701084
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 12. fundur - 17.01.2017
Óskað er eftir leyfi til að flytja einbýlishús frá Eyjafirði að Skógahlíð í Reykjahverfi. Meðfylgjandi umsókn eru teikningar af húsinu unnar af Ívari Ragnarssyni.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti húsbygginguna og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum hefur verið skilað til sveitarfélagsins.