Frímann Sveinsson sækir um leyfi til að breyta gluggum að Sólbrekku 7.
Málsnúmer 201709050
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 21. fundur - 17.10.2017
Óskað var eftir leyfi til breytinga glugga á vesturhlið Sólbrekku 7. Fyrir liggur rissmynd af gluggasetningu. Erindið var samþykkt af skipulags- og byggingarfulltrúa 8. september s.l.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við afgreiðslu skipulags- og byggingarfulltrúa.