Fensalir ehf. óska eftir að breyta neðri hæð á Stóragarði 13 í gistirými.
Málsnúmer 201710184
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 22. fundur - 21.11.2017
Óskað er eftir samþykki fyrir því að breyta verslunarrými að neðri hæð í Stóragarði 13 í gistirými til ferðaþjónustu. Meðfylgjandi umsókn er teikning sem sýnir fyrirkomulag beggja hæða.
Skipulags- og umhverfisnefnd felst á breytingarnar fyrir sitt leyti.