AÞ rekstraráætlun 2018
Málsnúmer 201711012
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 233. fundur - 10.11.2017
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hefur samþykkt rekstraráætlun fyrir árið 2018 og felur áætlunin m.a. í sér tillögu að framlögum sveitarfélaganna til félagsins sem gerð er grein fyrir í áætluninni. Óskað er eftir að tilkynnt verði um afgreiðslu þegar hún liggur fyrir.
Byggðarráð samþykkir framlagða rekstraráætlun Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga fyrir árið 2018.