Erindi frá Bergi E. Ágústssyni varðandi bílastæði.
Málsnúmer 201801165
Vakta málsnúmerFramkvæmdanefnd - 25. fundur - 12.02.2018
Bergur E. Ágústson sækir um leyfi til þess að gera innkeyrslu inn á lóð sinni að Ketilsbraut 23 á Húsavík. Áður hafði verið samþykkt að honum yrði merkt tvö stæði fyrir framan húsið, en þau yrðu gefin eftir í stað þeirra tveggja sem færu undir aðkeyrslu að væntanlegri innkeyrslu.
Framkvæmdanefnd samþykkir erindið.