Samráðslýðræði
Málsnúmer 201801187
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 241. fundur - 02.02.2018
Borist hefur tilboð í uppsetningu á upphafspakka vegna opins hugbúnaðar fyrir samráðsferla og samráðslýðræði. Í pakkanum felst stofnun og grunnuppsetning vefsins, ráðgjöf við innleiðingu og kynning á lýðræðislegum hliðum verkefnisins ásamt kennslu í stjórnun vefsins.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að skoða málið og eftir atvikum að kynna aftur fyrir byggðarráði.