Hitunarkostnaður á Raufarhöfn og möguleikar til úrbóta
Málsnúmer 201802124
Vakta málsnúmerOrkuveita Húsavíkur ohf - 174. fundur - 15.03.2018
Eins og ljóst þykir, er hitunarkostnaður mikið vandamál á Raufarhöfn og stendur atvinnulífi fyrir þrifum. Með aukinni þróun við notkun varmadæla, þykir íbúum Raufarhafnar grundvöllur til að gefa þeim lausnum meiri gaum.
Telja íbúar að sveitarfélagið saman með Orkuveitunni beri all nokkrar skyldur til að vinna hratt að þessu máli, og fara þess á leit að þessu verði gefinn góður gaumur sem allra fyrst.
Telja íbúar að sveitarfélagið saman með Orkuveitunni beri all nokkrar skyldur til að vinna hratt að þessu máli, og fara þess á leit að þessu verði gefinn góður gaumur sem allra fyrst.
Framkvæmdastjóra falið að skoða möguleika m.t.t. vatnsnýtingar í tengslum við rekstur varmadæla á þessu svæði.