Ósk um stækkun byggingarreits að Hraunholti 32
Málsnúmer 201804119
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 27. fundur - 17.04.2018
Bjarni Þór Björgvinsson óskar eftir samþykki fyrir því að fara um 2 m suður fyrir byggingarreit á lóðinni að Hraunholti 32.
Skipulags- og umhverfisnefnd fellst á að hús á lóðinni verði teiknað út fyrir byggingarreit, enda vandséð að þetta frávik frá gildandi deiliskipulagi muni hafa áhrif á neina nágranna.