Umsókn um að setja niður smáhýsi við Bakkagötu 4, Kópaskeri
Málsnúmer 201809099
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 9. fundur - 25.09.2018
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir 19,3 m² húsi við Bakkagötu 4 á Kópaskeri. Meðfylgjandi umsókn er teikning af húsi og afstöðu þess.
Skipulags- og framkvæmdaráð frestar afgreiðslu málsins þar til kannaðir hafa verið aðrir möguleikar í samráði við umsækjanda.