Heimabakarí óskar eftir leyfi til að reisa skýli yfir inngang að Garðarsbraut 18
Málsnúmer 201812071
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 19. fundur - 08.01.2019
Heimabakarí óskar eftir heimild til að reisa dyraskýli yfir inngang í bakaríið að Garðarsbraut 18. Fyrir liggur rissmynd af fyrirhuguðu skýli sem ætlað er að tryggja öryggi gesta gagnvart snjóskriði af þaki hússins. Meðfylgjandi umsókn er undirritað samþykki meðeigenda í húsinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir erindið.