Umsókn um byggingarleyfi fyrir hestaskýli í landi Presthóla
Málsnúmer 201812093
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 19. fundur - 08.01.2019
Sigurður Árnason óskar eftir byggingarleyfi fyrir hestaskýli vestan þjóðvegar í landi Presthóla. Fyrirhuguð bygging er 197,0 m² að flatarmáli og teikningar vann Marinó Eggertsson.
Fyrirhuguð bygging flokkast sem landbúnaðarbygging á landbúnaðarsvæði. Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á byggingu skýlisins á tilgreindum stað.