Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar eftir umsögn um rekstrarleyfi fyrir Dettifoss Guesthouse, Lundi
Málsnúmer 201903007
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 25. fundur - 05.03.2019
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar um rekstrarleyfi til handa Stóranúpi ehf. til reksturs gististaðar í flokki IV sem stærra gistiheimili í Dettifoss Guesthouse við Lund í Öxarfirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita jákvæða umsögn um erindið.