Óska eftir leyfi til að stækka svalir, Höfðavegur 24 Húsavík
Málsnúmer 201908047
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 40. fundur - 13.08.2019
Anný Peta Sigmundsdóttir og Eyþór Hemmert óska eftir leyfi fyrir stækkun á svölum og yfirbyggingu við stigauppgang. Fyrir liggur teikning unnin af Erni Sigurðssyni byggingartæknifræðingi.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á fyrirhugaðar breytingar og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni.