Umsókn um uppsetningu á útilistaverki á Raufarhöfn.
Málsnúmer 201908091
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 43. fundur - 11.09.2019
Finnbogi Gunnarsson óskar eftir leyfi til að setja upp listaverk á lóð Aðalbrautar 24 á Raufarhöfn. Verkið yrði um 3-4 m á hæð. Meðfylgjandi erindi er teikning af fyrirhuguðu verki sem og samþykki lóðarhafa fyrir uppsetningu þess.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir uppsetningu listaverksins, enda verði nánari staðsetning þess valin í samráði við fulltrúa sveitarfélagsins.