Ósk um söluheimild á Slökkvistöð Norðurþings að Höfða 20
Málsnúmer 201909014
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 43. fundur - 11.09.2019
Senn líður að því að ný slökkvistöð að Norðurgarði 5 verði afhent Slökkviliði Norðurþings til afnota. Verkefnastjóri framkvæmdasviðs óskar eftir söluheimild vegna núverandi slökkvistöðvar Norðurþings á Húsavík sem staðsett er að Höfða 20.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að eignin fari í söluferli.