Fannar Goði Ölversson óskar eftir að ruslatunnum verði fjölgað í Húsavíkurbæ.
Málsnúmer 201911027
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 50. fundur - 12.11.2019
Fannar Goði telur að fjölga þurfi ruslatunnum á Húsavík. Fáar ruslatunnur séu í bænum og flest allar á sama stað. Hann leggur til að láta a.m.k. eina tunnu í hvert hverfi í bænum.
Ráðið þakkar ábendinguna og bendir á að unnið hafi verið að fjölgun á ruslatunnum í bænum síðastliðið ár.