Kynning á mögulegum fyrirætlunum Iceland Pro Cruises
Málsnúmer 202002133
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 60. fundur - 03.03.2020
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur fyrir erindi frá Iceland Pro Cruises um mögulegar fyrirætlanir vegna siglinga til Húsavíkur, og viðverutíma í höfn, á næstu árum.
Skipulags- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í mögulegar fyrirætlanir fyrirtækisins um þátttöku í uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu en telur sér ekki fært að veita afslátt af hafnagjöldum.