Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Litlagerði 5
Málsnúmer 202006023
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 70. fundur - 09.06.2020
Óskað er leyfis til að byggja 25,4 m² viðbyggingu milli bílskúrs og íbúðarhúss. Teikningar eru unnar af Erni Sigurðssyni byggingartæknifræðingi.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á fyrirhugaða byggingu og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn þar að lútandi hafa borist.