Skipan í stjórn Húsavíkurstofu
Málsnúmer 202006098
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 331. fundur - 25.06.2020
Borist hefur erindi frá Heiðari Halldórssyni þar sem hann segir sig úr stjórn Húsavíkurstofu. Fyrir byggðarráði liggur að tilnefna nýjan fulltrúa í stjórnina.
Byggðarráð tilnefnir Huld Hafliðadóttur sem fulltrúa Norðurþings í stjórn Húsavíkurstofu.