Rifós hf. sækir um byggingarleyfi fyrir seiðahúsi
Málsnúmer 202008003
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 80. fundur - 13.10.2020
Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur samþykkt byggingaráform fyrir seiðahúsi við fiskeldisstöð fyrirtækisins að Lóni í Kelduhverfi. Húsið er 748,7 m² að flatarmáli. Byggingarfulltrúi kynnti þau gögn sem lágu til grundvallar afgreiðslunni.
Skipulags- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við þessa afgreiðslu skipulags- og byggingarfulltrúa.