Umsókn um stöðuleyfi fyrir geymsluskýli við Naustagarð 2
Málsnúmer 202010215
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 82. fundur - 10.11.2020
Vör Húsavík ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir geymsluskýli vestan við núverandi byggingu á lóðinni að Naustagarði 2. Ítarleg lýsing á fyrirhuguðu skýli ásamt rissmyndum fylgir erindi. Grunnflötur skýlisins er 112 m².
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir skýlinu til loka nóvember 2021.