Umsókn um stækkun byggingarreits og hækkun nýtingarhlutfalls við Naustagarð 2
Málsnúmer 202010216
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 82. fundur - 10.11.2020
Vör Húsavík ehf. óskar eftir að við endurskoðun deiliskipulags hafnarsvæðis verði byggingarreitur Naustagarðs 2 útvíkkaður eins og nánar er sýnt á rissmynd og nýtingarhlutfall hækkað í 0,4.
Skipulags- og framkvæmdaráð mun taka erindið fyrir við umfjöllun um breytingar á deiliskipulögum hafnarsvæðisins sem fyrirhugaðar eru nú í vetur.