Ósk um kaup á jörðinni Þórseyri í Kelduhverfi
Málsnúmer 202101004
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 86. fundur - 12.01.2021
Fyrir ráðinu liggur erindi þar sem óskað er eftir kaupum á Þórseyri í Kelduhverfi.
Skipulags- og framkvæmdaráð er ekki reiðubúið að selja jörðina að Þórseyri í heild sinni. Ráðið felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að gera tillögu að lóð undir húseignir með sölu þeirra í huga og einnig að hafa samband við bréfritara og upplýsa um framgang mála.