Samkomulag Rifóss og Norðurþings vegna gatnagerðar og greiðslu gatnagerðargjalda á Röndinni Kópaskeri
Málsnúmer 202101131
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 351. fundur - 28.01.2021
Fyrir byggðarráði liggja drög að samkomulagi milli Rifóss hf. og Norðurþings vegna gatnagerðar og greiðslu gatnagerðargjalda vegna uppbyggingar á fiskeldisstöð félagsins á Röndinni á Kópaskeri.
Byggðarráð samþykkir samkomulagið og felur sveitarstjóra að undirrita það.