Átak í sumarstörfum námsmanna 18. ára og eldri, 2021
Málsnúmer 202104111
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 360. fundur - 29.04.2021
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Helenu Eydísi Ingólfsdóttur fyrir hönd Þekkingarnets Þingeyinga varðandi sumarstörf í tengslum við átaksverkefni fyrir námsmenn 18 ára og eldri.
Byggðarráð Norðurþings - 364. fundur - 03.06.2021
Auglýst voru svokölluð sumarstörf námsmanna í Norðurþingi en aðeins hafa borist umsóknir um tvö af þeim níu störfum sem auglýst voru. Annar starfsmaðurinn sem hefur verið ráðinn verður á Raufarhöfn en hinn á Húsavík.
Lagt fram til kynningar.
Berglind Hauksdóttir stýrir fundi undir þessum lið í fjarveru formanns og varaformanns.
Byggðarráð samþykkir að auglýsa þau 10 störf sem sveitarfélagið fær úthlutað framlagi fyrir frá Vinnumálastofnun.