Ósk um uppsetningu aðstöðugáms fyrir sjoppu við tjaldsvæði
Málsnúmer 202105150
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 99. fundur - 08.06.2021
Óskað er stöðuleyfis fyrir aðstöðugám sem nýtist bæði starfsemi fótboltavallar og tjaldstæðis. Áætlað er að gámurinn standi til loka september 2021. Fyrir liggur rissmynd af afstöðu og ljósmyndir af gámnum. Fyrir liggur jákvæð umsögn frá íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir gámnum til loka september n.k.