Erindi vegna fjarlægingar á ruslagám við Meiðavelli í Kelduhverfi
Málsnúmer 202109153
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 107. fundur - 05.10.2021
Erindi frá Ágústu Ágústsdóttur varðandi ruslagám við Meiðavelli.
Skipulags- og framkvæmdaráð hyggst ekki endurnýja gámaplanið við Meiðavelli á þessu stigi. Unnið er við uppbyggingu á gámaplani við Þverá í Öxarfirði og stefnt að endurbótum á gámaplani við Höfðabrekku. Ráðið hafnar því beiðni Ágústu.