Sigurgeir Pétursson óska eftir að hafnarstjórn mæli með honum sem hafnsögumanni í höfnum Norðurþings
Málsnúmer 202110161
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 110. fundur - 02.11.2021
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Sigurgeiri Péturssyni þar sem hann óskar eftir meðmælum frá hafnastjórn varðandi hafnsögu við hafnir Norðurþings.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita Sigurgeiri meðmæli sem hafnsögumanni við hafnir Norðurþings og felur hafnastjóra að útbúa meðmælabréf.