Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi að Hraunholti 1
Málsnúmer 202201070
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 117. fundur - 01.02.2022
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir 154,7 m² einbýlishúsi á lóðinni að Hraunholti 1. Fyrirhuguð bygging er viðarklætt timburhús. Hönnuður hússins er Yngvi Ragnar Kristjánsson byggingartæknifræðingur.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á framlagðar teikningar og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.