Suðurnesjalína 2, áskorun til sveitarfélaga frá bæjarráði sveitarfélagsins Voga
Málsnúmer 202203022
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 390. fundur - 10.03.2022
Til umsagnar í byggðarráði. Bókun bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga á 350. fundi bæjarráðs 2.3.2022. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hvetur sveitarfélög landsins og Samband íslenskra sveitarfélaga til að veita umsögn og taka afstöðu til frumvarps til laga um að veita Landsneti framkvæmdaleyfi til lagningar Suðurnesjalínu 2 í lofti í sveitarfélaginu.
Bergur Elías óskar bókað:
Ég tel mikilvægt að sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga sé virtur.
Benóný Valur tekur undir bókun Bergs.