Ósk um umsögn um rekstarleyfi vegna N1 Húsavík
Málsnúmer 202205017
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 126. fundur - 10.05.2022
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Norðurþings um leyfi til veitingasölu fyrir allt að 60 gesti úti og inni á lóðinni að Héðinsbraut 2. Forsvarsmaður veitingasölu væri Jón Viðar Stefánsson.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita sýslumanni jákvæða umsögn um erindið.