Ósk um upplýsingar um stöðu mála varðandi húsnæði frístundaheimilisins Túns
Málsnúmer 202209089
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 128. fundur - 27.09.2022
Fyrir hönd V-listans óskar Ingibjörg Benediktsdóttir eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi húsnæði frístundaheimilisins Túns.
Í ljósi þess að málið er einnig að dagskrá skipulags- og framkvæmdaráðs í dag, mun fjölskylduráð fjalla aftur um það að viku liðinni.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 134. fundur - 27.09.2022
Fyrir hönd V-listans óskar Aldey Unnar Traustadóttir eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi húsnæði frístundaheimilisins Túns.
Farið var yfir stöðu mála varðandi húsnæði frístundaheimilisins Túns.