Markaðsherferð fyrir Húsavík
Málsnúmer 202303028
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 424. fundur - 23.03.2023
Á fund byggðarráðs mætti Örlygur Hnefill Örlygsson og kynnti markaðsherferðina "Heimabærinn minn" sem Húsavíkurstofa er að undirbúa.
Byggðarráð þakkar Örlygi Hnefli verkefnastjóra Húsavíkurstofu fyrir komuna á fundinn og greinargóða kynningu á markaðsherferðinni Heimabærinn minn.