Samningar vegna hugbúnaðarþjónustu
Málsnúmer 202306015
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 432. fundur - 08.06.2023
Fyrir byggðarráði liggur kynning ráðgjafa vegna samninga um UT- þjónustu.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að samningum í samræmi við þá ráðgjöf sem kynnt var á fundinum og leggja fyrir ráðið á næsta fundi.
Byggðarráð Norðurþings - 433. fundur - 22.06.2023
Fyrir byggðarráði liggja drög af samningum við Advania um net og fjarskiptaþjónustu, rekstur og hýsingu, selda þjónustu.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og felur sveitarstjóra að ganga frá samningum við Advania.