Ósk um styrk vegna vinnu við tillögur fyrir Raufarhöfn
Málsnúmer 202306099
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 434. fundur - 29.06.2023
Fyrir byggðarráði liggur ósk um styrk frá fjórum hönnuðum og arkitektúrnemum sem stunda nám á meistarastigi við Listaháskóla Íslands. Hópurinn stundar um þessar mundir rannsóknir á Raufarhöfn.
Byggðarráð samþykkir að veita hópnum styrk að upphæð 100.000 kr. ásamt aðgengi að aðstöðu sveitarfélagsins á svæðinu vegna rannsóknarverkefnis á Raufarhöfn.