Naustalækur ehf.óskar eftir samstarfi við sveitarfélagið vegna byggingar fjölbýlishúss að Stóragarði 20.
Málsnúmer 202306102
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 434. fundur - 29.06.2023
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Naustalæk ehf. sem óskar eftir samstarfi vegna byggingar á 25 íbúða fjölbýli við Stóragarð 20 á Húsavík.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ræða frekar við forvarsfólk Naustalæks ehf. og kanna möguleika á aðkomu og kjörum HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar) vegna verkefnisins.