Uppfærðar reglur Jöfnunasjóðs vegna aðgengismála fatlaðs fólks 2023-2024
Málsnúmer 202307004
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 164. fundur - 15.08.2023
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggja uppfærðar reglur vegna úthlutunar á styrkjum vegna aðgengismála í fasteignum sveitarfélagsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs kynningu á uppfærðum reglum Jöfnunarsjóðs. Ráðið felur honum að undirbúa umsóknir til Jöfnunarsjóðs vegna aðgengismála í eignum sveitarfélagsins.