Ársreikningur og ársskýrsla Völsungs 2022
Málsnúmer 202311068
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 169. fundur - 21.11.2023
Fyrir ráðinu liggur til kynningar ársreikningur og ársskýrsla íþróttafélagsins Völsungs fyrir árið 2022.
Jónas Halldór Friðriksson framkvæmdastjóri Völsungs kemur á fundinn og fer yfir rekstur félagsins frá 2011 til og með 2022.
Jónas Halldór Friðriksson framkvæmdastjóri Völsungs kemur á fundinn og fer yfir rekstur félagsins frá 2011 til og með 2022.
Ráðið þakkar framkvæmdastjóra Völsungs fyrir kynninguna. Ráðið lýsir yfir ánægju sinni með þróun á starfi Völsungs undanfarin ár, aukningu á fjölda iðkenda á öllum aldri og gott samstarf um samþættingarverkefnið fyrir 4-8 ára gömul börn.