Uppgjör Norðurþings vegna sjúkrasjóðs Framsýnar
Málsnúmer 202312112
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 452. fundur - 04.01.2024
Við endurskoðun hjá stéttarfélaginu Framsýn kom í ljós að Norðurþing hefur verið að skila of lágu gjaldi í sjúkrasjóð Framsýnar frá 1. janúar 2020 og allt fram á árið 2023.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá uppgjöri við stéttarfélagið Framsýn vegna framlags sveitarfélagsins í sjúkrasjóð stéttarfélagsins.