Beiðni um afnot af íþróttahúsinu á Kópaskeri vegna nytjamarkaðar
Málsnúmer 202401039
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 174. fundur - 23.01.2024
Kvenfélagið Stjarnan óskar eftir endurgjaldslausu afnoti af íþróttahúsinu á Kópaskeri vegna fyrirhugaðs nytjamarkaðar sem fyrirhugað er að halda um mánaðarmótin febrúar/mars.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Kvenfélaginu Stjörnunni endurgjaldslaus afnot af íþróttahúsinu á Kópaskeri vegna nytjamarkaðar félagsins.