Félagar í Miðjunni hæfingu óska eftir aðstöðu i Kvíabekk til að starfrækja kaffihús sumarið 2024
Málsnúmer 202402077
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 182. fundur - 27.02.2024
Félagar í Miðjunni hæfingu óska eftir að fá að starfrækja kaffihús í Kvíabekk með sama sniði og gert var sumarið 2023. Óskað er afstöðu skipulags- og framkvæmdaráðs til erindisins.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að leyfa Miðjunni hæfingu að nota Kvíabekk sem kaffihús sumarið 2024.