Ósk um leyfi fyrir skilti fyrir Hlöðufell Restaurant ehf.
Málsnúmer 202402122
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 183. fundur - 12.03.2024
Rekstraraðli Hlöðufell Restaurant ehf óskar eftir heimild til að setja upp skilti á einhvern þriggja ljósastaura við Garðarsbraut á svæðinu frá Bjarnahúsi að Íslandsbanka.
Skipulags- og framkvæmdaráð veitir byggingarfulltrúa heimild til að samþykkja skilti á ljósastaur milli Garðarsbrautar 5 og 7.