Erindi frá 2.bekk varðandi leiksvæði við Borgarhólsskóla.
Málsnúmer 202404096
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 189. fundur - 14.05.2024
Tekið fyrir erindi sem barst sveitarstjóra frá nemendum í 2. bekk Borgarhólsskóla; ósk um fleiri og fjölbreyttari leiktæki á lóð skólans.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar 2. bekk í Borgarhólsskóla fyrir erindið. Tekið verður tillit til hugmyndanna við hönnun skólalóðarinnar. Í sumar verður settur upp nýr körfuboltavöllur á skólalóðina.