Fara í efni

Hlutafjáraukning Íslensk orka ehf.

Málsnúmer 202405043

Vakta málsnúmer

Orkuveita Húsavíkur ohf - 255. fundur - 21.05.2024

Fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur liggur ákvörðun um hlutafjáraukningu í félaginu Íslensk orka ehf. Um er að ræða félag sem Orkuveita Húsavíkur ohf. á 31,45% hlut í. Félagið er með áform um að viðhalda og kanna frekari möguleika. Til þess að halda áfram með rannsóknir og framgang mála er nauðsynlegt að auka við hlutafé samkvæmt síðustu fundargerð félagsins.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. samþykkir fyrirliggjandi áætlun um hlutafjáraukningu til næstu ára.