Umsókn um breytingu á Hafnarstétt 21
Málsnúmer 202406020
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 191. fundur - 18.06.2024
Óskað er leyfis til breytinga á vesturstafni Hafnarstéttar 21. Breytingar felast í því að iðnaðarhurð verður fjarlægð í stað sett minni umgangshurð. Ennfremur verði sagað niður úr gluggagati nyrst á stafninum og sett þar umgangshurð. Með erindi fylgja teikningar af breytingunum unnar af Erni Sigurðssyni tæknifræðingi.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar byggingarfulltrúa að samþykkja erindið.