Fara í efni

Áskorun til Norðurþings vegna aðstöðu til íþróttaiðkunar í Öxarfirði

Málsnúmer 202406022

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 188. fundur - 11.06.2024

Fyrir fjölskylduráði liggur áskorun frá stjórn foreldrafélagsins í Öxarfjarðarskóla vegna aðstöðu til íþróttaiðkunar í Öxarfirði.

Fjölskylduráð þakkar stjórn foreldrafélagsins fyrir erindið.
1. Málefni sundlaugarinnar í Lundi eru í farvegi innan stjórnsýslu Norðurþings.
2. Unnið er að hönnun skólalóðarinnar í Lundi.
3. Úrbætur á viðbyggingu eru í ferli.
Íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að kanna kostnað við uppbyggingu sparkvallar við Lund.