Umsóknir um aflamark á Raufarhöfn
Málsnúmer 202406065
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 468. fundur - 20.06.2024
Fyrir byggðarráði liggur umsagnarbeiðni frá Byggðarstofnun vegna úthlutunar aflamarks á Raufarhöfn.
Sveitarfélagið gerir ekki athugasemdir við tillögu Byggðastofnunar og treystir á að stofnunin úthluti aflaheimildum til samræmis við meginmarkmið verkefnisins. Lykilatriði fyrir sveitarfélagið Norðurþing er að úthlutun auki stöðuleika og fjölgi störfum til lengri tíma.