Stórinúpur ehf.óskar eftir að kaupa viðskipta og þjónustulóð í eigu Norðurþings.
Málsnúmer 202408028
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 472. fundur - 15.08.2024
Fyrir byggðarráði liggur ósk eigenda Stóranúps ehf. um kaup á lóð við Lund í Öxarfirði L222272 og F2166383. Lóðin er 20.018 m2 að stærð.
Byggðarráð hafnar ósk eigenda Stóranúps ehf. um kaup á landi í eigu Norðurþings, leigusamningur var gerður um lóðina við félagið á árinu 2023 þar er leigutaka leigð lóðin til ótakmarkaðs tíma.