Fara í efni

Ósk um að Orkuveita Húsavíkur ohf.verði styrktaraðili Íþróttafélagsins Þingeyings.

Málsnúmer 202408038

Vakta málsnúmer

Orkuveita Húsavíkur ohf - 257. fundur - 19.08.2024

Íþróttafélagið Þingeyingur er félag stofnað 2021 sem starfar í Kelduhverfi, Öxarfirði og Kópaskeri með sitt helsta markmið að auka og efla hversskyns hreyfingu íbúa í Öxarfirði með áherslu á hreyfingu ungmenna, ásamt tækjaeigna og aðstöðusköpun til íþrótta. Leitar því félagið eftir við Orkuveitu Húsavíkur ohf. um að verða styrktaraðili íþróttafélagssins.


Meirihluti Orkuveitu Húsavíkur ohf. samþykkir að styrkja Íþróttafélagið Þingeying um 200.000 kr. úr samfélagssjóði OH.

Undirritaður situr hjá við afgreiðsluna þar sem verklag við úthlutanir í samfélagsverkefni er ómarkvisst. Ég hvet til þess að Orkuveitan taki upp verklag sem allar aðrar orkuveitur í landinu fara, þ.e. að auglýsa einu sinni á ári eftir styrkjum í samfélagsverkefni og leggja svo mat á þær umsóknir allar í einu og afgreiða á einum stjórnarfundi.
Valdimar Halldórsson

Umsóknum í samfélagssjóð OH hefur fjölgað mikið á árinu 2024 og leggja undirritaðir til að úthlutunarreglur samfélagssjóð OH verði yfirfarðar á næsta fundi OH.
Eysteinn Heiðar Kristjánsson og Sigurgeir Höskuldsson.